Elma
Strákar sem meiða eftir Evu Björgu Ægisdóttur var ein mest selda skáldsaga ársins 2023, hlaut einróma lof og var tilnefnd til Blóðdropans Íslensku glæpsagnaverðlaunanna.
Maður finnst myrtur í sumarbústað í Skorradal. Á veggnum fyrir ofan hann hafa verið skilin eftir blóðug skilaboð. Elma, sem aðdándur Evu Bjargar þekkja úr fyrri bókum hennar, glímir hér við sérlega erfitt mál sem teygir anga sína víða um samfélagið og tugi ára aftur í tímann ekki síst eftir að gömul dagbók ungs drengs finnst. Og á Akranesi er fólk sem vill alls ekki að sannleikurinn komi í ljós.
Eva Björg hefur á aðeins örfáum árum skipað sér í framvarðarsveit evrópskra glæpasagnahöfunda og hlotið verðlaun heima og erlendis fyrir bækur sínar. Enginn glæpasagnaunnandi verður svikinn af þessari nýjustu bók Evu Bjargar.